Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

533/2021

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 630/2007 um ólífrænan áburð.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XIV. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2021, frá 19. mars 2021, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1666 frá 10. nóvember 2020 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2003/2003 um áburð í því skyni að bæta við nýrri tegund EB-áburðar í I. viðauka. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 28, frá 15. apríl 2021, bls. 143.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna áburðar­eftirlits sé framfylgt í samræmi við 3. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica