Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 26. apríl 2022

522/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 420/2021, um strandveiðar fiskveiðiárið 2020/2021.

1. gr.

1. tl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Óheimilt er að stunda veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Þá eru strandveiðar bannaðar á uppstigningardag, annan í hvítasunnu, 17. júní og á frídegi verslunarmanna.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. maí 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.