Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 16. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. jan. 2024

430/2021

Reglugerð um almennan stuðning við landbúnað.

Birta efnisyfirlit

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um stuðningsgreiðslur sem falla undir rammasamning um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins dagsettan 19. febrúar 2016 með síðari breytingum.

2. gr. Orðskýringar.

Í reglugerð þessari hafa eftirtalin orð þá merkingu sem hér segir:

Afurð: Greiðslukerfi og gagnagrunnur sem heldur utan um framkvæmd búvörusamninga.

Ágangur álfta og gæsa: Þegar ágangur álfta og gæsa er svo mikill að hann veldur eða er líklegur til að valda tjóni á ræktarlandi.

Bústofn: Gagnagrunnur sem inniheldur upplýsingar um hagtölur í samræmi við lög um búfjárhald nr. 38/2013.

Framleiðandi: Einstaklingur eða lögaðili.

Heiðrún: Tölvukerfi og gagnagrunnur í eigu Bændasamtaka Íslands, sem heldur utan um afurðaskýrsluhald í geitfjárrækt.

Jörð: Tölvukerfi og gagnagrunnur í eigu Bændasamtaka Íslands sem heldur utan um skýrsluhaldskerfi og skýrsluhaldsgögn í jarðrækt. Tölvukerfið sækir upplýsingar um stafræn túnkort úr túnkortagrunni Bændasamtaka Íslands.

Kornrækt: Korn sem ræktað er til þroska og þreskt af plöntu.

Lífræn framleiðsla: Landbúnaður sem stundaður er í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara, með síðari breytingum.

Túnkort: Rafrænt myndasafn af túnum og ræktarlandi.

3. gr. Handhafar greiðslna.

Greiðslur samkvæmt reglugerð þessari fá framleiðendur einir sem uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. skráðir eigendur eða leigjendur lögbýlis/garðyrkjubýlis með lögheimili á Íslandi og
  2. stunda landbúnað á lögbýlinu/garðyrkjubýlinu með virkt virðisaukaskattsnúmer og starfsemi þeirra fellur undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.

Hjón og einstaklingar í óvígðri sambúð, samkvæmt skráningu í þjóðskrá, sem standa saman að búrekstri geta óskað eftir því að greiðslum samkvæmt reglugerð þessari sé skipt jafnt á milli aðila. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða með aðskilinn búrekstur getur hver og einn þeirra verið handhafi greiðslna.

Skilyrði greiðslna er að framleiðandi sé skráður handhafi eftir því sem við á. Sé úthlutað eftir umsókn er ekki þörf á handhafaskráningu. Frumskráning skal gerð með þeim hætti að framleiðandi skráir sig sem handhafa í Afurð. Breyting á handhöfum stuðningsgreiðslna tekur gildi miðað við dagsetningu á tilkynningar í Afurð um skráningu handhafa stuðningsgreiðslna, nema um annað sé samið og gögn um það fylgi tilkynningu. Breyting tekur þó aldrei gildi fyrr en tilkynning hefur verið móttekin af ráðuneytinu.

4. gr. Framkvæmdanefnd búvörusamninga.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga skv. 31. gr. búvörulaga nr. 99/1993 er samráðsvettvangur samningsaðila rammasamnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga aflar upplýsinga um þróun framleiðslu og sölu á landbúnaðarafurðum, afurðaverð, inn- og útflutning landbúnaðarafurða, afkomuþróun í landbúnaði auk annarra upplýsinga sem hafa þýðingu fyrir framkvæmd samnings þessa, sem og framkvæmd samninga um starfsskilyrði nautgriparæktar, sauðfjárræktar og garðyrkju.

Á grundvelli upplýsinga skv. 2. mgr. getur framkvæmdanefnd búvörusamninga ákveðið að færa fjármuni á milli einstakra verkefna sem falla undir rammasamning um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins, sbr. töflu í viðauka I við samninginn. Heimilt er að færa árlega allt að 20% þeirrar fjárhæðar sem ætlaðar eru til hvers verkefnis. Nefndin skal tilkynna ráðuneytinu um tilfærslur sem taka eiga gildi um áramót eigi síðar en 1. desember árið á undan.

Ráðuneytið ráðstafar framlögum samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga.

II. KAFLI Kynbótaverkefni.

5. gr. Ráðstöfun framlaga.

Framlög til kynbótaverkefna skiptast í framlög til ræktunarverkefna og einangrunarstöðva.

Bændasamtök Íslands ráðstafa framlögum samkvæmt 1. mgr. Samtökin skulu árlega skila yfirliti yfir ráðstöfun fjármunanna til ráðuneytisins.

III. KAFLI Jarðræktarstyrkur og landgreiðslur.

6. gr. Umsókn.

Ráðuneytið annast úthlutun jarðræktarstyrkja, landgreiðslna og styrkja vegna ágangs álfta og gæsa, sbr. 10. gr. Ár hvert auglýsir ráðuneytið eftir umsækjendum um framlög. Umsóknum skal skila inn í Afurð. Opnað verður fyrir umsóknir 1. júní ár hvert en lokaumsókn skal skilað vegna jarðræktarstyrkja og landgreiðslna eigi síðar en 1. október ár hvert. Umsóknum um styrki vegna ágangs álfta og gæsa og tjónmati skal skilað rafrænt eigi síðar en 20. október ár hvert. Beri 1. október eða 20. október upp á helgi eða almennan frídag framlengist umsóknarfrestur fram að miðnætti næsta virka dag.

Umsækjendur um jarðræktarstyrki til kornræktar, sem stofna jarðræktarumsókn og skrá upplýsingar um sáningu á korni í síðasta lagi 15. júní geta óskað eftir fyrirframgreiðslu vegna kornræktar í samræmi við umsókn sem miðast að jafnaði við 25% af einingaverði jarðræktarstyrks ársins á undan. Skilyrði fyrir veitingu stuðnings skv. III. kafla eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi skv. 11. gr.

7. gr. Jarðræktarstyrkur.

Jarðræktarstyrkjum skal varið til nýræktar og endurræktunar á túnum, kornræktar og ræktunar annarra fóðurjurta. Uppskera er forsenda fyrir jarðræktarstyrk.

Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á lífdísel enda sé hratið nýtt til fóðurs, ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á því ári sem uppskorið er. Beit búpenings telst vera uppskera og nýting kornhálms og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis telst styrkhæf. Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári. Ekki telst styrkhæf ræktun ef kornrækt er eingöngu ætluð til að draga að gæsir til skotveiði, nema ef kornhálmur er sannarlega hirtur eða plægður niður. Önnur ræktun sem ekki er nytjuð til búskapar, þar með talin sáning í golfvelli, tjaldstæði o.s.frv. er ekki styrkhæf.

Í umsókn bús um framlög skulu koma fram upplýsingar um nafn, kennitölu og heimilisfang umsækjanda, búsnúmer og landnúmer jarðar sem ræktað er og framleiðanda er heimilt að nýta. Þá skal vera tenging við spildur í Jörð, þar sem liggur til grundvallar fullnægjandi túnkort af ræktunarspildu sem sótt er um styrk fyrir. Þegar ræktað er aðeins í hluta af spildu, sem sækja á um styrk út á, skal hnita þann hluta og skrá sérstaklega í túnkortagrunn sem nýja spildu.

Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú tekur mið af heildarfjölda ha sem sótt er um. Að undanskildum jarðræktarstyrk til kornræktar skerðist fjöldi ha sem sótt er um í samræmi við eftirfarandi:

Fjöldi ha sem sótt er um Stuðull umsóttra ha
1-30 ha 1,0
31-60 ha 0,7
≥ 61 ha 0,4

Í þeim tilfellum sem grasfræi er skjólsáð með grænfóðri eða korni er veittur jarðræktarstyrkur fyrsta árið. Þó svo að uppistaða uppskeru fyrsta árs sé grænfóður eða korn og uppskera annars árs sé gras, er veittur aðeins einn jarðræktarstyrkur vegna framkvæmdarinnar.

Greitt er út á heila hektara (ha) og venjulegar reglur um upphækkanir gilda.

8. gr. Landgreiðslur.

Framlögum skal ráðstafa á ræktað land sem uppskorið er til fóðuröflunar og framleiðanda er heimilt að nýta. Framlög eru ekki greidd út á land sem eingöngu er nýtt til beitar.

Í umsókn um framlög skulu koma fram upplýsingar um nafn, kennitölu og heimilisfang umsækjanda, búsnúmer, landnúmer þess lands sem uppskorið er til fóðuröflunar ásamt tengingu við spildur í Jörð, þar sem liggur til grundvallar fullnægjandi túnkort af landi sem sótt er um styrk fyrir. Þegar uppskorinn er hluti lands, sem sækja á um styrk út á, skal skrá sérstaklega þann fjölda hektara sem er uppskorinn.

Framlög taka mið af heildarfjölda ha sem sótt er um og deilast jafnt út á þá ha sem sótt er um stuðning fyrir.

9. gr. Takmörkun framlaga.

Framleiðandi getur ekki fengið framlög samkvæmt 7. gr. um jarðræktarstyrki og 8. gr. um landgreiðslur fyrir sömu spildur á sama ári. Álög á stuðul, sbr. 10. gr., reiknast á styrki vegna jarðræktarstyrkja ef uppfyllt eru skilyrði til stuðnings vegna ágangs álfta og gæsa.

10. gr. Ágangur álfta og gæsa.

Greiddur er stuðningur skv. 8. gr. vegna ágangs álfta og gæsa á nýrækt og endurrækt á túnum, kornrækt og rækt annarra fóðurjurta.

Framleiðendur skulu skila inn rafrænni tjónaskýrslu í umsóknarkerfi ráðuneytisins innan þriggja sólarhringa frá því tjóns verður vart eða álftir og gæsir hafa haft sig á brott. Með umsókn skal skila inn myndum af tjóni er sýna umfang ágangs. Síðasti skilafrestur til að skila inn tjónaskýrslu er 20. október á því ári sem tjón verður. Úttektaraðili skal að jafnaði taka út tjón í samræmi við 12. gr. reglugerðarinnar og samninga úttektaraðila við ráðuneytið innan 4 vikna frá tilkynningu um tjón.

Heimilt er að hafna stuðningi hafi framleiðandi ekki sinnt leiðbeiningum um forvarnir sem komið hefur verið á framfæri með sannanlegum hætti.

Stuðningur skal reiknaður með eftirfarandi hætti:

Hlutfallslegt tjón á uppskeru vegna ágangs álfta og gæsa Umfang tjóns á tjónaskýrslu Álag á stuðul umsóknar
Mikið beitt land 71-100% 75%
Beit í meðallagi 31-70% 50%
Lítil beit 11-30% 0%

11. gr. Fullnægjandi skil á skýrsluhaldi.

Til þess að uppfylla skilyrði um fullnægjandi skýrsluhald í jarðrækt þarf að skrá eftirfarandi upplýsingar í Jörð:

  1. Nafn, kennitölu og heimilisfang framleiðanda, búsnúmer og landnúmer jarðar sem ræktað er á. ÍSAT-númer búrekstrar samkvæmt skráningu hjá RSK.
  2. Virkt virðisaukaskattsnúmer búrekstrar.
  3. Eftirfarandi upplýsingar um hverja spildu úr Jörð:

    1. Nafn og/eða númer spildu.
    2. Hnitsetningu spildu byggða á landupplýsingakerfi (LUK) sem byggir á stafrænu túnkorti. Túnkortið á að sýna nákvæmlega þær ræktunarspildur sem eru grundvöllur að styrkjum.
    3. Ræktun, þ.e. gras, grænfóður, korn eða olíujurtir.
    4. Tegund og yrki, þegar sótt er um jarðræktarstyrk.
    5. Stærð spildu í hekturum.
    6. Ræktunarár, ef ræktað síðastliðin 5 ár.
    7. Dagsetningu sáningar, ef sótt er um jarðræktarstyrk.
    8. Dagsetningu uppskeru.
    9. Notkun alls áburðar (áburðargjöf).
    10. Dagsetningu slátta.
  4. Heildaruppskeru í kg þurrefnis fyrir hverja spildu.
  5. Heildarfjölda uppskorinna hektara, ef sótt er um landgreiðslu.

Þegar metið er hvort túnkort er fullnægjandi skal byggja það mat á því hvort fagaðili hafi teiknað og mælt viðkomandi ræktun með viðurkenndum aðferðum.

12. gr. Úttektir.

Skilyrði þess að verkefni njóti jarðræktarstyrks, landgreiðslna og stuðnings vegna ágangs álfta og gæsa er að fram hafi farið úttekt.

Til að standast úttekt vegna jarðræktar og landgreiðslna þarf að liggja fyrir fullnægjandi stafrænt túnkort af ræktarlandinu í Jörð.

Úttektaraðili sannreynir stærð ræktunar og hvort skilyrði til styrkveitinga eru að öðru leyti uppfyllt, þar með talin styrkveiting vegna ágangs álfta og gæsa.

Heimilt er að vettvangsúttekt fari einungis fram með tilviljunarkenndu úrtaki, óháð umfangi ræktunar. Ef til staðar eru fullnægjandi gervihnattamyndir af umsóttum spildum, sem nægja til úttektar á umsókn, telst það fullgild vettvangsúttekt.

Um fyrirkomulag úttekta og kostnað við þær skal kveðið á um í samningnum ráðuneytisins við úttektaraðila.

Úttektir á framkvæmdum skulu berast ráðuneytinu fyrir 15. nóvember á sama ári eftir að umsókn berst og skulu styrkir greiddir fyrir árslok.

Úttektir skulu skráðar með hnitsetningu í rafrænt umsóknarkerfi.

IV. KAFLI Nýliðunarstuðningur.

13. gr. Stuðningur.

Ráðuneytið ráðstafar fjármunum til nýliðunarstuðnings. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

14. gr. Rétthafar stuðnings.

Framlög til nýliðunarstuðnings beinast að einstaklingum í eigin nafni, óháð hjúskaparstöðu, eða til lögaðila sem nýliði á a.m.k. 25% hlut í.

Þeir einstaklingar einir geta sótt um nýliðunarstuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:

  1. Uppfylla skilyrði skv. 3. gr.
  2. Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
  3. Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
  4. Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning samkvæmt reglugerð þessari að teknu tilliti til 17. gr.
  5. Hafa ekki hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2015-2016.
  6. Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.

15. gr. Auglýsing og umsókn.

Árlega skal auglýsa nýliðunarstuðning. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi eigi síðar en 1. september ár hvert.

Umsókn skal innihalda:

  1. Lýsingu á búrekstrinum og fjárfestingunni sem óskað er stuðnings við.
  2. Rökstuðning fyrir nýliðunarstuðningi.
  3. Markmið fjárfestingarinnar.

Fylgiskjöl með umsókn:

  1. Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði skv. 14. gr.
  2. Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
  3. 5 ára rekstraráætlun með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
  4. Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
  5. Afrit af reikningum fyrir kaupum.
  6. Afrit af leigusamningi, ef við á.

Aðeins eftirfarandi fjárfesting telst styrkhæf við úthlutun nýliðunarstuðnings:

  1. Kaup á jörð.
  2. Kaup á fasteign.
  3. Kaup á bústofni eða plöntum til framleiðslu garðyrkjuafurða.
  4. Kaup á greiðslumarki.
  5. Kaup á tækjum og búnaði til búskapar sem sannarlega eru hluti af fjárfestingu í tengslum við nýliðun.

Kaup á lögaðila sem hefur eignarhald á styrkhæfri fjárfestingu, sbr. liði a-e í 4. mgr., eru styrkhæf á sama hátt og bein fjárfesting umsækjanda enda skal þá liggja fyrir sundurliðun á fjárfestingu, sbr. liði a-e í 4. mgr.

Heimilt er að kalla eftir öðrum upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á umsókn og gildir heimildin í fimm ár frá því nýliðunarstuðningur var síðast veittur. Umsóknum sem skilað er með ófullnægjandi gögnum hefur ráðuneytið heimild til að hafna. Ráðuneytið tilkynnir umsækjendum um niðurstöðu matsins.

16. gr. Forgangsröðun umsókna.

Ef sótt er um hærri fjárhæð en er til úthlutunar hverju sinni skal umsóknum einstaklinga forgangsraðað með vísan til eftirfarandi þátta:

  1. Menntunar umsækjanda á sviði landbúnaðar eða sem nýtist í landbúnaði.
  2. Jafnréttissjónarmiða.
  3. Heildarmats á umsókn m.t.t. rökstuðnings með umsókn, verk- og framkvæmdaáætlun, 5 ára rekstraráætlun og niðurstöðu hennar og fleiri atriða sem ráðuneytið ákveður að leggja til grundvallar við mat á umsókn í samræmi við reglur um forgangsröðun skv. 2. mgr.

Birta skal nánari reglur um forgangsröðun umsókna skv. 1. mgr. þar sem hver þáttur er metinn til stiga. Umsóknir skulu flokkaðar eftir stigafjölda.

17. gr. Hámark stuðnings.

Nýliðunarstuðningur er veittur til fjárfestinga í búrekstri. Stuðningur getur að hámarki numið 20% af heildarfjárfestingakostnaði á ári og skulu framlög til einstakra nýliða ekki vera hærri en níu milljónir króna í heildarstuðning. Hafi umsækjandi hlotið annan stuðning, styrk eða bætur vegna sömu framkvæmda og sótt er um stuðning vegna, skal tilgreina það í umsókn. Heimilt er að draga þá fjárhæð frá stofnkostnaði.

Framlög skerðast hlutfallslega á allar samþykktar umsóknir ef fjármunir hrökkva ekki til. Þær umsóknir sem lenda í forgangi skv. ákvæðum um forgangsröðun í samræmi við 16. gr. ganga fyrir öðrum umsóknum við styrkúthlutun.

Stuðningur til nýliða skal taka mið af eignarhlut hans.

Ef talið er að fjárfestingakostnaður á ári sé hærri en eðlilegt getur talist skal taka tillit til þess við útreikning á endanlegri styrkupphæð. Upplýsa skal umsækjanda um slíkar breytingar og gefa honum hæfilegan frest til andmæla.

Heimilt er að veita stuðning við sömu fjárfestingu í allt að þrjú ár, þó aldrei umfram hámark skv. 1. mgr. uppfylli umsækjandi skilyrði 14. gr.

18. gr. Endurgreiðsla.

Heimilt er að krefjast endurgreiðslu nýliðunarstuðnings ef í ljós kemur að umsækjandi hafi veitt rangar eða villandi upplýsingar eða leynt upplýsingum sem áhrif höfðu á veitingu stuðnings.

Hafi nýliði hætt búrekstri innan fimm ára frá því að nýliðunarstuðningur var síðast veittur er heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum stuðningi, að hluta til eða í heild sinni, ásamt kostnaði við innheimtu.

V. KAFLI Lífræn framleiðsla.

19. gr. Rétthafar stuðnings.

Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. og hafa byrjað lífræna aðlögun í landbúnaði undir eftirliti faggildrar vottunarstofu og í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar, með síðari breytingum, geta sótt um aðlögunarstuðning vegna lífrænna framleiðsluhátta.

Skilyrði fyrir stuðningi eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í þeim búgreinum sem við á hverju sinni.

20. gr. Auglýsing og umsókn.

Ráðuneytið auglýsir eftir umsóknum árlega. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi og skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

  1. Upplýsingar um nafn, kennitölu, og lögheimili framleiðanda sem sækir um stuðning.
  2. Upplýsingar um búsnúmer lögbýlis sem verið er að aðlaga að lífrænni framleiðslu.
  3. Lýsingu á búrekstrinum sem verið er að aðlaga að lífrænni framleiðslu, þar með talið upplýsingar um gripafjölda eftir tegundum búfjár, flatarmál lands eftir tegund nytja og aðstæður í gripahúsum sem breyta þarf til að mæta kröfum um aðbúnað lífræns búfjár.
  4. Áætlaður aðlögunarkostnaður á umsóknarári samkvæmt kostnaðaráætlun.
  5. Upplýsingar um áður fenginn aðlögunarstuðning ef við á.

Fylgiskjöl með fyrstu umsókn:

  1. Kostnaðaráætlun unnin af fagaðila. Í kostnaðaráætlun skal meðal annars leggja mat á þann kostnað vegna lífrænnar aðlögunar sem framleiðandi þarf að bera frá því að lífræn aðlögun hefst og þar til að lífræn vottun fæst. Kostnaðinn skal áætla fyrir hvert ár aðlögunarinnar og skal líta til eftirfarandi þátta:

    1. Fjárfestingar: Breytingar á húsakosti til að uppfylla viðbótarkröfur um aðbúnað og gólfrými, tækjabúnað og aðstöðu, námskeið og fræðsluefni til að byggja upp þekkingu framleiðanda.
    2. Rekstrarútgjöld sem tengjast sérstaklega aðlögunarferlinu: Gerð aðlögunaráætlunar; greiningar jarðvegssýna og fóðursýna, gerð jarðakorta, ráðgjöf búnaðarráðunauta; og fyrstu úttektir vottunarstofu.
    3. Lækkun tekna vegna minni framleiðslu á hverja flatar- og búfjáreiningu: ræðst m.a. af þekkingu og hæfni framleiðanda, jarðvegsgerðar, landsháttum, veðurfari og fyrirkomulagi búreksturs árin áður en aðlögun hefst.
  2. Afrit af áætlun um aðlögun að lífrænni landbúnaðarframleiðslu, staðfest af faggildri vottunarstofu.
  3. Staðfesting faggildrar vottunarstofu um að umsækjandi hafi undirritað samning við hana um reglubundið eftirlit með framleiðslunni samkvæmt reglum um lífræna framleiðslu. Einnig skal fylgja staðfesting faggiltrar vottunarstofu um að umsækjandi hafi lokið a.m.k. átta klukkustunda námskeiði fagaðila, eins eða fleiri, um lífræna aðlögun landbúnaðarframleiðslu, þar sem fjallað er um aðlögunarferlið, lífrænar aðferðir í þeim búgreinum sem aðlaga á að kröfum, skráningar og skýrsluhald í lífrænum búskap, fyrirkomulag eftirlits og vottunar og fyrirkomulag ráðgjafar og stuðnings við lífræna aðlögun. Ráðuneytið skal staðfesta fyrirkomulag og skipulag námskeiðsins.

21. gr. Hámarksframlög.

Ráðuneytið annast úthlutun aðlögunarstuðnings. Stuðningur við hvern framleiðanda getur að hámarki numið 70% af árlegum aðlögunarkostnaði skv. 4. tl. 1. mgr. 20. gr. með tilliti til umfangs aðlögunar. Hver framleiðandi getur þó ekki fengið hærra framlag árlega en 20% af heildarframlögum stuðningsins samkvæmt fjárlögum.

Heimilt er að veita framleiðanda árlegan aðlögunarstuðning á meðan aðlögun undir eftirliti faggildrar vottunarstofu stendur yfir. Umsækjandi skal þá sækja um að nýju skv. 20. gr. Ný umsókn skal vera með uppfærðum upplýsingum og fylgiskjölum auk þess skal fylgja með umsókn staðfesting faggiltrar vottunarstofu á að aðlögun standi yfir samkvæmt áætlun.

22. gr. Eftirlit og úttektir.

Heimilt er að kalla eftir frekari upplýsingum frá framleiðanda sé talin þörf á því til að meta umsókn.

Hætti framleiðandi lífrænni aðlögun án þess að hljóta lífræna vottun innan tveggja ára frá því aðlögunarstuðningur var síðast veittur er heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum stuðningi, að hluta til eða í heild sinni, ásamt kostnaði við innheimtu.

VI. KAFLI Geitfjárrækt.

23. gr. Gripagreiðslur.

Eigendur geitfjár sem uppfylla skilyrði 3. gr. eiga rétt á gripagreiðslum fyrir skráð geitfé samkvæmt Bústofni. 69% árlegs framlags til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins skal ráðstafað til gripagreiðslna.

Ráðuneytið tekur ákvörðun um það hvaða framleiðendur uppfylla skilyrði reglugerðarinnar til að eiga rétt á gripagreiðslum og hver er fjárhæð greiðslna til hvers framleiðanda. Skýrslum skal skilað eigi síðar en 12. desember ár hvert.

Hlutdeild hvers framleiðanda í heildarframlagi til gripagreiðslna geitfjárræktar fer eftir fjölda geita samkvæmt afurðaskýrsluhaldi.

Réttur til gripagreiðslna fellur niður vegna ófullnægjandi skila á haustskýrslu í Bústofn, ófullnægjandi merkingum geitfjár samkvæmt gildandi reglugerð um merkingar búfjár eða þegar talið er að ráða megi af gögnum, eða ástæða er til þess af öðrum sökum, að véfengja upplýsingar um framleiðslu. Við þær aðstæður er heimilt að láta kanna eða framkvæma talningu á gripum hjá viðkomandi framleiðanda.

24. gr. Álag á fiðu.

Álag á fiðu er greitt fyrir fiðu sem unnin er af vottunaraðila sem ráðuneytið staðfestir. Sá aðili skal skila gögnum til ráðuneytisins um magn unninnar fiðu einstakra framleiðenda eigi síðar en 15. nóvember. Ráðuneytið skal greiða álag á unna fiðu til framleiðanda fyrir lok hvers árs.

8% árlegs framlags til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins skal ráðstafað til greiðslu álags á fiðu.

25. gr. Álag á mjólkurframleiðslu.

Álag á framleiðslu geitamjólkur er greitt fyrir þá lítra mjólkur sem eru innvigtaðir af aðilum sem hafa leyfi til mjólkurvinnslu. Sá aðili skal skila gögnum til ráðuneytisins um magn innvigtaðrar mjólkur einstakra framleiðenda eigi síðar en 15. nóvember. Ráðuneytið skal greiða álag á framleiðslu geitamjólkur til framleiðanda fyrir lok hvers árs.

8% árlegs framlags til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins skal ráðstafað til greiðslu álags á mjólkurframleiðslu.

26. gr. Sæðistaka, geymsla og fleira.

Ráðuneytið skal greiða framlög samkvæmt framlögðum reikningi og samningi Geitfjárræktarfélags Íslands við sæðingastöð um geymslu á sæði, töku á sæði og tækjabúnað.

15% af árlegum framlögum til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins skal ráðstafað til geymslu sæðis, töku á sæði og tækjabúnað.

27. gr. Nýting fjármuna.

Ef fjárframlög til geitfjárræktar eru ekki að fullu nýtt skal fjármunum sem eftir standa ráðstafað til annarra verkefna á sviði geitfjárræktar samkvæmt tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga.

VII. KAFLI Fjárfestingastuðningur í svínarækt.

28. gr. Markmið.

Greidd eru framlög til fjárfestingastuðnings í svínarækt vegna ársins 2021. Markmið stuðningsins er að auðvelda sérstaklega smærri svínabúum að hraða því að standast kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð svína, með síðari breytingum.

Heimilt er að ráðstafa allt að 60% árlegs framlags til fjárfestingastyrkja í svínarækt samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins til greiðslu fjárfestingastuðnings.

29. gr. Auglýsing og umsókn.

Ráðuneytið annast umsýslu vegna fjárfestingastuðnings. Ráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um framlög til fjárfestingastuðnings. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi eigi síðar en 31. mars vegna framkvæmda á árinu.

Framleiðandi í svínarækt sem heldur gyltur á búi sínu og uppfyllir eftirfarandi skilyrði, getur sótt um stuðning til fjárfestinga:

  1. Uppfyllir skilyrði 3. gr.
  2. Fullnægir skilum á haustskýrslu í Bústofn skv. 10. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald.
  3. Fullnægir skilum á hjarðbók og heilsukorti og merkir svín með réttum hætti, í samræmi við gildandi reglugerð um merkingar búfjár, með síðari breytingum.

Í umsókn skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

  1. Nafn, kennitala og lögheimili framleiðanda.
  2. Búsnúmer lögbýlis.
  3. Tegund stuðnings sem óskað er eftir.
  4. Nýframkvæmdir.
  5. Endurbætur á eldri byggingum.
  6. Kaup á innréttingum og búnaði.
  7. Heildarkostnaður vegna fjárfestingar á umsóknarári án vsk.
  8. Rökstuðningur fyrir framkvæmd.
  9. Þegar greiddur fjárfestingastuðningur, ef við á.
  10. Upplýsingar um gyltufjölda á árunum 2014-2016.

Fylgiskjöl með umsókn, eftir því sem við á:

  1. Framkvæmdaáætlun með verklýsingu og tímasettri verkáætlun.
  2. Úrbótaáætlun sem er í gildi á umsóknarári samkvæmt reglugerð um velferð svína.
  3. Sundurliðuð kostnaðaráætlun, þar sem kemur fram sundurliðun með einingaverði og fjölda eininga.
  4. Byggingarleyfi og staðfesting um að framkvæmdir séu hafnar, ef við á.
  5. Leyfi þinglýsts eiganda jarðar vegna framkvæmda.
  6. Samþykkt teikning vegna framkvæmda, ef við á.

30. gr. Skilyrði stuðnings.

Fjárfestingastuðningur er veittur framleiðanda skv. 2. mgr. 29. gr. sem hyggst fara í framkvæmdir til að hraða því að standast kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð svína, með síðari breytingum. Hafi framleiðandi fengið úreldingarbætur skulu þær dregnar frá þeim fjárfestingastuðningi sem honum er veittur.

Stuðningur er veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:

  1. Vegna nýbygginga eða viðbygginga.
  2. Endurbóta á eldri byggingum, þar sem skipt er út meira en 50% af innréttingum.
  3. Kaupa á innréttingum og búnaði.

31. gr. Útreikningur fjárfestingastuðnings.

Ráðuneytið annast úthlutun fjárfestingastuðnings og leggur mat á hvort umsóknir uppfylli skilyrði reglugerðarinnar. Ráðuneytið skal tilkynna framleiðanda um afgreiðslu umsóknar eigi síðar en 15. maí.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.

Kostnaður sem liggur að baki framkvæmdum sem óskað er stuðnings fyrir skal miðaður við staðalverð fyrir hverja einingu, svo sem gotbása, gólfgerð og fleira. Staðalverð eininganna skal staðfest af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.

Fjárfestingastuðningur skiptist hlutfallslega milli samþykktra umsókna. Hámarksstuðningur miðast við að meðalfjöldi gyltna hafi verið allt að 200 á árunum 2014-2016 samkvæmt haustskýrslu í Bústofni. Stuðningur skerðist í samræmi við neðangreinda töflu:

Gyltufjöldi Stuðull skerðingar
≥ 200 1,00
175-199 0,94
150-174 0,81
125-149 0,69
100-124 0,56
75-99 0,44
50-74 0,31
25-49 0,19
0-24 0,06

Framlög skerðast hlutfallslega á allar samþykktar umsóknir ef fjármunir hrökkva ekki til.

Við upphaf framkvæmdar sem telst styrkhæf greiðist 50% af samþykktri stuðningsupphæð og 50% í framhaldi af skilum á lokaskýrslu. Heimilt er að óska eftir afriti af reikningum vegna framkvæmda sem nutu fjárfestingastuðnings.

32. gr. Eftirlit.

Ráðuneytið hefur eftirlit með því að stuðningur sem veittur hefur verið hafi verið notaður til þeirra fjárfestinga sem getið er um í umsókn skv. 29. gr.

Ráðuneytið getur látið framkvæma úttekt á framkvæmd stuðningsþega sé talin þörf á því. Ef talið er að framkvæmdakostnaður eða einstaka kostnaðarliðir hafi farið fram úr því sem eðlilegt getur talist skal taka tillit til þess við útreikning á endanlegri styrkupphæð. Upplýsa skal stuðningsþega um allar slíkar breytingar og gefa honum hæfilegan frest til andmæla.

Heimilt er að hafna umsókn ef að gögn vantar í umsókn og/eða upplýsingar í umsókn eru ekki fullnægjandi, enda liggi málefnalegar og gildar ástæður því að baki og ekki hefur verið brugðist við áður gefnum fresti til úrbóta.

Komi í ljós að stuðningur sem greiddur hefur verið hafi ekki verið nýttur til framkvæmda sem sótt var um stuðning fyrir eða vikið hafi verið frá upplýsingum samkvæmt umsókn, skal framleiðandi endurgreiða þegar greiddan stuðning.

VIII. KAFLI Þróunarfjármunir búgreina.

33. gr. Þróunarverkefni í nautgriparækt og sauðfjárrækt.

Þróunarfjármunum er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í nautgriparækt og sauðfjárrækt. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári og er styrkjum úthlutað eftir umsóknum og í samræmi við reglugerð þessa.

34. gr. Umsagnir fagráða.

Fagráð í nautgriparækt og sauðfjárrækt skulu gefa umsagnir um allar umsóknir sem berast, eftir því sem við á. Ákvörðun um úthlutun styrkja skal tekin með hliðsjón af umsögnum fagráðanna. Fagráð skulu leggja faglegt mat á umsóknir um styrk. Meðmæli fagráðs er forsenda styrkveitingar. Sé fagráð vanhæft til að fjalla um umsókn skal það tilkynna ráðuneytinu um vanhæfi sitt. Ráðuneytinu er þá heimilt að afgreiða umsókn án umsagnar fagráðs.

Fagráð skulu setja sér verklagsreglur um mat á umsóknum um þróunarfé í viðkomandi búgrein. Í reglunum er heimilt að kveða á um hámarkshlutfall þróunarfjár af heildarkostnaði hvers verkefnis sem talið er styrkhæft.

35. gr. Skipting heildarframlaga milli búgreina.

Heildarframlög til þróunarverkefna skiptast á milli búgreina með eftirfarandi hætti:

  1. Nautgriparækt 23%.
  2. Sauðfjárrækt 77%.

Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.

Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að vera kennsla, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.

36. gr. Styrkþegar og umsókn.

Þrátt fyrir 3. gr. geta styrkþegar verið einstaklingar, rannsóknarhópar, háskólar, rannsóknarstofnanir, félög og fyrirtæki.

Umsóknum skal skilað í rafrænt umsóknarkerfi. Umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn, eftir því sem við á:

  1. Listi yfir þá sem aðild eiga að verkefninu.
  2. Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis þ.m.t. rökstuðningur fyrir því hvernig það fellur að þeim markmiðum sem tilgreind eru í 33. gr. og hvernig það gagnast viðkomandi búgrein að öðru leyti.
  3. Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu áfanga þess.
  4. Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild.
  5. Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar.

Ráðuneytið og fagráð geta óskað eftir frekari gögnum sé þess þörf til að leggja mat á umsókn.

37. gr. Greiðsla.

Áður en styrkur er greiddur skal umsækjandi staðfesta að fjármögnun verkefnisins í heild hafi verið tryggð, sbr. d-lið 36. gr.

Við úthlutun styrks skal greiða 50% styrkfjárhæðar. Þegar lokaskýrsla verkefnis hefur verið samþykkt af fagráði og ráðuneyti skal greiða eftirstöðvar styrkfjárhæðar. Ef veittur er styrkur sem er undir einni milljón króna er hann greiddur út í heild sinni við samþykkt lokaskýrslu. Heimilt er að víkja frá framangreindu fyrirkomulagi í samningi ef eðli verkefnisins eða aðrar veigamiklar ástæður krefjast þess.

38. gr. Lokaskýrsla.

Styrkþegar skulu skila skýrslu til ráðuneytisins um verkefnið eigi síðar en 6 mánuðum eftir að því lýkur. Sé verkefnið til lengri tíma en eins árs skal skila árlegri áfangaskýrslu. Í skýrslunni skal lagt mat á framgang verkefnisins og hverju það hafi skilað fyrir viðkomandi búgrein.

Ráðuneytinu er heimilt að leita umsagna viðkomandi fagráðs um verkefnaskýrslur sem styrkþegum er gert að skila.

39. gr. Styrkur fellur niður.

Styrkveitingar til verkefna þar sem ekki tekst að uppfylla skilyrði þessara reglna um skýrsluskil og lok verkefnis, skv. 38. gr., innan 12 mánaða frá því að fyrirheit um styrk er samþykkt, falla niður. Heimilt er, vegna sérstakra aðstæðna, að veita frest til ráðstöfunar framlaga á næsta ári eftir úthlutun, enda hafi borist formleg beiðni þess efnis frá styrkþega fyrir lok úthlutunarárs.

Heimilt er að krefjast endurgreiðslu á greiddum styrk, að hluta til eða í heild sinni ásamt kostnaði við innheimtu, ef verkefni sem veittur hefur verið styrkur fyrir er ekki framkvæmt í samræmi við áætlanir.

IX. KAFLI Ýmis ákvæði.

40. gr. Endurgreiðsla ofgreiddra greiðslna.

Ef greiðslur samkvæmt reglugerð þessari hafa verið ofgreiddar ber handhafa greiðslna að endurgreiða ríkinu hið ofgreidda fé. Beri að endurgreiða greiðslur skal handhafi endurgreiða greiðslur með vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá þeim tíma er greiðslan átti sér stað og þar til endurgreiðsla fer fram. Auk almennra vaxta skal handhafi greiða dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Vextir skulu þó ekki greiddir ef endurgreiðsla fer fram innan 30 daga frá því að greiðslan fór fram.

41. gr. Skerðing og niðurfelling greiðslna.

Heimilt er að skerða, fella niður eða krefjast endurgreiðslu á stuðningsgreiðslum samkvæmt reglugerð þessari ef framleiðandi gefur vísvitandi rangar upplýsingar eða brýtur á annan hátt skilyrði reglugerðarinnar.

42. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt búvörulögum nr. 99/1993 og búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið skv. lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

43. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum og búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 1260/2018 um almennan stuðning við landbúnað.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir 33. gr. skal auglýst árið 2021 eftir umsóknum um þróunarfé með umsóknarfresti 1. maí og 1. október.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.