1. gr.
5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003 er ekki heimilt að flytja til slátrunar alifuglahópa sem greinst hafa með salmonellu. Matvælastofnun getur þó heimilað slátrun á alifuglahópum sem greinst hafa með salmonellu með skilyrðum sem eru nánar tiltekin í landsáætlun Matvælastofnunar um varnir og viðbrögð vegna salmonellu í alifuglarækt og afurðum alifugla.
Óheimilt er að senda alifuglahóp til slátrunar sem alinn er í húsi þar sem greinst hefur salmonella síðastliðna 12 mánuði, nema fyrir liggi tvö sýni úr sláturhópnum, sem tekin eru skv. landsáætlun Matvælastofnunar um varnir og viðbrögð vegna salmonellu í alifuglarækt og afurðum alifugla og að ekki hafi greinst í þeim salmonella. Seinna sýnið má ekki vera eldra en fimm daga gamalt fyrir slátrun.
Finnist salmonella í sýnum sem tekin eru við slátrun, skal innkalla afurðirnar, þeim fargað eða þær hitameðhöndlaðar, þannig að kjarnhiti nái 72°C, áður en afurðunum er dreift, samkvæmt fyrirmælum Matvælastofnunar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og öðlast gildi við birtingu.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. janúar 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kolbeinn Árnason.