Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

52/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 728/2020 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021.

1. gr.

Í stað 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar koma tvær nýjar málsgreinar svohljóðandi:

Réttindi til úthlutunar fylgja skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun aflamarks, skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.

Ef fiskiskip er endurnýjað eftir að skipting aflamarks hefur farið fram samkvæmt 1. mgr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt 6. gr. er heimilt að óska eftir að flytja rétt til úthlutunar aflamarks af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, enda hafi verið gerður fyrirvari þess efnis í kaupsamningi eða afsali, hafi skip verið selt á því tímamarki.

2. gr.

Í stað "2019/2020" í 3. málsl. 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: 2020/2021.

3. gr.

Í stað orðanna "samkvæmt þessari grein" í 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar komi: samkvæmt 6. gr.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. janúar 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.