Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 22. maí 2021

15/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 509/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/626 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Evrópusambandsins og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/759 að því er varðar þessar skrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2209 frá 22. desember 2020 um breytingu á I., II. og III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/626 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og hjálendur krúnunnar í skránni yfir þriðju lönd eða svæði þeirra þaðan sem aðflutningur til Evrópusambandsins á tilteknum dýrum og vörum, sem eru ætluð til manneldis, er leyfður.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2209, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. janúar 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.