Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

11/2021

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 907/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 28. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2204 frá 22. desember 2020 um breytingu á I. og II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og hjálendur krúnunnar í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2204, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. janúar 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.