1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2020, frá 30. desember 2020, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2202 frá 22. desember 2020 um breytingu á III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1251/2008 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og hjálendur krúnunnar í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem innflutningur inn til Evrópusambandsins á sendingum af lagareldisdýrum er leyfður. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2020, frá 30. desember 2020.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. janúar 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)