Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 15. sept. 2022

1378/2020

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1641 frá 5. nóvember 2020 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/158 frá 4. febrúar 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1641 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.