Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1344/2020

Reglugerð um (21.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. bætist nýr töluliður, 59. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1752 frá 23. nóvember 2020 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Ástralíu í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er inn­flutningur til Sambandsins eða umflutningur um Sambandið á tilteknum alifuglavörum í tengslum við alvarlega fuglainflúensu.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1752 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 54/1990, um inn­flutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breyt­i­ngum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. desember 2020.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kolbeinn Árnason.

Iðunn Guðjónsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica