Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 23. des. 2020

1305/2020

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III B og IV B við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.: stk. % kr./stk.
0602.2000 Tré, runnar og búskar, einnig ágrætt sem ber æta ávexti eða hnetur 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0602.3010 Alparósir og lyngrósir (Rhododendron), einnig ágræddar 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0602.3020 Glóðarrósir (Azalea) 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Rósir, einnig ágræddar:
0602.4010 Í smásöluumbúðum 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0602.4090 Aðrar 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0602.9030 Matjurta- og jarðarberjaplöntur 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Annað: Útiplöntur: - Tré, runnar og búskar:
0602.9041 Skógartré sem ungar sáðplöntur af barr- eða lauftrjátegundum sem einkum eru nýttar til skógræktar, oftast án rótarhnauss (berróta eða bakkaplöntur) 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Annað:
0602.9045 Græðlingar með rót og ungplöntur 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0602.9049 Annars 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Aðrar útiplöntur:
0602.9051 Fjölærar jurtkenndar plöntur 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Græðlingar með rót og ungplöntur, þó ekki kaktusar:
0602.9070 Græðlingar með rót og ungplöntur, þó ekki kaktusar, til framhaldsræktunar 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:
0602.9081-9083 og 0602.9088 Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar 01.01.-30.06.21 2.200 30 0
0602.9081-9083 og 0602.9088 Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar 01.07.-31.12.21 1.650 30 0
0602.9089 Aðrar 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Aðrar:
0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.01.-30.06.21 3.000 30 0
0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.07.-31.12.21 2.160 30 0
0602.9099 Annars 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
Lifandi:
0603.1100 Rósir 01.01.-30.06.21 2.000 30 0
0603.1300 Orkídeur, þ.m.t. brönugrös (Orchidaceae) 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.01.-30.06.21 9.000 30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.07.-31.12.21 6.500 30 0
0603.1901 Ættkvíslirnar Protea, Banksia, Leucadendron og Brunia 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0603.1902 Afskornar greinar með berjum og ávöxtum, óætum af ættkvíslunum: Ligustrum, Callicarpa, Gossypium, Hypericum, Ilex og Symphoricarpos 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0603.1903 Forsythia (páskagreinar) 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999 Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt, þ.m.t. geislafíflar, sólliljur, fétoppar, silkivendir, ilmskúfar, ljónsmunnar, gullhrís, silfurstjörnur, brúðarslör, flamingoblóm og túlípanar 01.01.-30.06.21 166.250 30 0
0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999 Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt, þ.m.t. geislafíflar, sólliljur, fétoppar, silkivendir, ilmskúfar, ljónsmunnar, gullhrís, silfurstjörnur, brúðarslör, flamingoblóm og túlípanar 01.07.-31.12.21 118.750 30 0
Annað:
0604.2030 Jólatré, án rótar 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0604.2040 Jólatrésgreinar 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0604.2090 Annað 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0
0604.9090 Annars 01.01.-31.12.21 ótilgr. 30 0

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ekki tilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil. Fyrir þau tollskrárnúmer sem vörumagn er tilgreint gildir tiltekinn verð- og/eða magntollur samkvæmt útgefnum tollkvótum.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Við úthlutun á tollkvótum sem fellur undir tollskrárnúmer þar sem vörumagn er tilgreint skal auglýsa eftir umsóknum um tollkvóta.

4. gr.

Með umsókn um tollkvóta vegna tollskrárnúmera þar sem vörumagn er tilgreint skal senda tilboð sem verður tekið tillit til ef það berast umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur. Í þeim tilvikum skulu tilboðin ráða úthlutun viðkomandi vöruliðar. Tollkvótanum verður fyrst úthlutað til hæstbjóðanda, svo til þess er næsthæst bauð og þannig koll af kolli uns tiltækum kvóta hefur verið úthlutað og greiða bjóðendur tilboðsfjárhæðina að fullu.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá útgáfu reiknings vegna úthlutunar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 189/1990, um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum, með síðari breytingum.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 65. gr. og 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. og 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2021.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. desember 2020.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.