Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 23. des. 2020

1304/2020

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur, sem tók gildi 19. október 2017 en kom til framkvæmda 1. maí 2018, á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 5. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.

Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópusambandsins, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
kg % kr./kg
0201/0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst 01.01. - 30.04.21 232.000 0 0
0203 Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst 01.01. - 30.04.21 233.000 0 0
0207 Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst 01.01. - 30.04.21 285.000 0 0
ex0207 Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu 01.01. - 30.04.21 67.000 0 0
0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum 01.01. - 30.04.21 33.000 0 0
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.01. - 30.04.21 77.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.01. - 30.04.21 127.000 0 0
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.01. - 30.04.21 83.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.01. - 30.04.21 133.000 0 0

(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

4. gr.

Með umsókn um tollkvóta skal senda tilboð sem verður tekið tillit til ef það berast umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur. Í þeim tilvikum skulu tilboðin ráða úthlutun viðkomandi vöruliðar. Tollkvótanum verður fyrst úthlutað til hæstbjóðanda, svo til þess er næsthæst bauð og þannig koll af kolli uns tiltækum kvóta hefur verið úthlutað og greiða bjóðendur tilboðsfjárhæðina að fullu.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá útgáfu reiknings vegna úthlutunar.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur, skal ráðherra úthluta tollkvóta vegna vöruliðarins eftir hlutkesti. Hver tilboðsgjafi skal þó að hámarki hljóta 15% af heildarmagni auglýsts tollkvóta ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

6. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. B, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 30. apríl 2021.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. desember 2020.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.