1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 109/2020, frá 14. júlí 2020, gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/436 frá 24. mars 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 906/2009 að því er varðar gildistíma hennar.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 906/2009, frá 28. september 2009, er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 27. janúar 2011, bls. 71-74.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 906/2009 hefur áður verið innleidd með reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 906/2009 frá 28. september 2009 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða milli áætlunarskipafélaga (skipafélagasamtaka), nr. 1272/2012.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. nóvember 2020.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Heimir Skarphéðinsson.