Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1175/2020

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1782 um kröfur varðandi visthönnun ytri aflgjafa samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 278/2009.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 6s í kafla IV í II. viðauka og lið 26t í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2020, frá 25. september 2020, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1782, frá 1. október 2019, um kröfur varðandi visthönnun ytri aflgjafa samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 278/2009.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1782 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73/2020, 12. nóvember 2020, bls. 28.

3. gr.

Eftirtalin reglugerð er felld brott: Reglugerð nr. 419/2011, um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 278/2009.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. nóvember 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.