Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 4. feb. 2022

1124/2020

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1253/2019 um stuðning við sauðfjárrækt.

1. gr.

5. málsl. 4. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo: Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslumark frá og með 1. janúar á næsta almanaksári eftir kaupin.

2. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:

Þrátt fyrir ákvæði 3. og 4. mgr. 12. gr. verður óselt greiðslumark sem var innleyst árin 2017 og 2018 sett á auka markað sem mun fara fram þann 1. desember 2020. Greiðslumarkið sem var innleyst á þessum tveimur árum mun verða til úthlutunar til samræmis við ákvæði reglugerðarinnar. Skilafrestur á beiðnum um kaup á þessum auka markaði er 3. desember 2020. Greiðslufrestur er 10. desember.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum og búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. nóvember 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.