Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 12. ágúst 2021

1006/2020

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021.

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum, á viðkomandi tímabilum:

Tegund/Svæði Tonn Skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar Veiðitímabil
1. Hörpudiskur
Breiðafjörður 93 5 88
2. Rækja á grunnslóð
Arnarfjörður 184 10 174
Breiðafjörður, norðurfirðir
Eldeyjasvæði
Húnaflói
Ísafjarðardjúp 586 31 555
Skagafjörður
Skjálfandaflói
Öxarfjörður

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. október 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.