Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

862/2020

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 659/2014, um vigtun og skráningu meðafla við veiðar á uppsjávarfiski.

1. gr.

7. málsliður 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Við vigtun á pökkuðum afurðum skulu enn fremur koma fram á vigtarnótu upplýsingar um afdrif hverrar tegundar til vinnslu eða bræðslu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin tekur þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. september 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.