Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 12. ágúst 2021

810/2020

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021.

1. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða:

Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki hverrar botnfisktegundar og humars frá fiskveiðiárinu 2019/2020 yfir á fiskveiðiárið 2020/2021. Ákvæði þetta öðlast þegar gildi.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. ágúst 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.