Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

732/2020

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 580/2012 um framleiðslu og markaðssetningu aðila undir smáræðismörkum á matvælum og afhendingu frumframleiðenda á litlu magni matvæla beint til neytenda og staðbundinna smásölufyrirtækja.

1. gr.

Á eftir 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. kemur nýr 6. tölul. sem hljóðar svo: Afhendingu Umhverfisstofnunar á hreindýrakjöti beint til neytenda eða til smásölufyrirtækis sem afhendir beint til neytenda, sbr. 7. gr. a.

2. gr.

Á milli orðanna "varðandi" og "hollustuhættir" í 4. mgr. 4. gr. bætist orðið: sjúkdóma.

3. gr.

Við 7. gr. a bætist ný 2. mgr. svohljóðandi: Umhverfisstofnun er heimilt að afhenda að hámarki 1.500 kg. af hreindýrakjöti af dýrum frá hverju veiðitímabili, sem falla eða eru felld vegna slysaskota eða sem stofnunin lætur veiða í samræmi við reglugerð um stjórn hreindýraveiða, beint til neytenda eða til smásölufyrirtækis sem afhendir beint til neytenda.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2020.

Kristján Þór Júlíusson

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Linda Fanney Valgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.