Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

504/2020

Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2074 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um sértækt opinbert eftirlit með sendingum af tilteknum dýrum og vörum sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur eftir að þriðja land hefur synjað um innflutning.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum, sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2020, frá 7. febrúar 2020, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2074 frá 23. september 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um sértækt opinbert eftirlit með sendingum af tilteknum dýrum og vörum sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur eftir að þriðja land hefur synjað um innflutning. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 23. apríl 2020, bls. 938.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.