Fjármála- og efnahagsráðuneyti

404/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 192/2016, um mat á vegnum fjármagnskostnaði sem viðmið um leyfða arðsemi við ákvörðun tekjumarka sérleyfisfyrirtækja í flutningi og dreifingu á raforku, með síðari breytingum

1. gr.

2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Grunnvextir í Bandaríkjadölum eru ákvarðaðir á grundvelli samtölu 10 ára viðmiðs ávöxtunar­kröfu bandarískra ríkisskuldabréfa (e. 10 y US TIPS) og 10 ára áhættuálags ríkissjóðs Íslands að frá­dregnu 10 ára áhættuálagi ríkissjóðs Bandaríkjanna. Miða skal við upplýsingar um skulda­trygg­ingar­­álag til 10 ára (e. 10 y CDS) sem fengnar eru frá viðurkenndri gagnaveitu.

 

2. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Veginn fjármagnskostnaður dreifiveitna ákvarðast af eftirfarandi gildum og er reiknaður sam­kvæmt WACC formúlunni, sem sett er fram í 2. gr.:

Viðmið um eiginfjárhlutfall e 55%
Viðmið um skuldahlutfall d 45%
Beta-gildi hlutafjár βE 0,74
Vaxtaálag sD 1,0%
Áhættuálag markaðar sM 5,2%
Sérstakt áhættuálag sL 1,0%

Miða skal við grunnvexti rf í íslenskum krónum, sbr. 1. mgr. 3. gr., og tekjuskattshlutfall TS sem ákvarðað er á grundvelli 71. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

 

3. gr.

5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Veginn fjármagnskostnaður flutningsfyrirtækis vegna flutnings til dreifiveitna ákvarðast af eftir­farandi gildum, sbr. 2. gr.:

    Viðmið um eiginfjárhlutfall e 50%
    Viðmið um skuldahlutfall d 50%
    Beta-gildi hlutafjár βE 0,81
    Vaxtaálag sD 1,0%
    Áhættuálag markaðar sM 5,2%
    Sérstakt áhættuálag sL 1,0%

    Miða skal við grunnvexti rf í íslenskum krónum, sbr. 1. mgr. 3. gr., og tekjuskattshlutfall TS sem ákvarðað er á grundvelli 71. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.
  1. Veginn fjármagnskostnaður flutningsfyrirtækis vegna flutnings til stórnotenda ákvarðast af eftirfarandi gildum, sbr. 2. gr.:

    Viðmið um eiginfjárhlutfall e 50%  
    Viðmið um skuldahlutfall d 50%  
    Beta-gildi hlutafjár βE 0,81  
    Vaxtaálag sD 1,0%  
    Áhættuálag markaðar sM 5,2%  
    Sérstakt áhættuálag sL 1,0%  

    Miða skal við grunnvexti rf í Bandaríkjadölum, sbr. 2. mgr. 3. gr. og tekjuskattshlutfall TS sem ákvarðað er á grundvelli 71. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

 

4. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Orkustofnun skal taka ákvörðun um grunnvexti næsta almanaksárs fyrir 15. maí, byggða á for­sendum um grunnvexti, skv. 1. og 2. mgr. 3. gr. Ákvörðun grunnvaxta leiðir af sér nýja ákvörðun um veginn fjármagnskostnað.

 

5. gr.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 8. mgr. 12. gr. og 8. mgr. 17. gr. raforkulaga nr. 65/2003, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. apríl 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Sigríður Valgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica