Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 4. feb. 2022

344/2020

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1253/2019 um stuðning við sauðfjárrækt.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem hljóðar svo:

Þrátt fyrir 2. mgr. 5. gr. skal árið 2020 greidd tvöföld greiðsla fyrir janúar, mars, apríl, maí og júní en á móti felld niður greiðsla fyrir febrúar, september, október, nóvember og desember. Einföld mánaðargreiðsla er fyrir júlí og ágúst.

2. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. apríl 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Linda Fanney Valgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.