Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 24. mars 2022

299/2020

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1252/2019 um stuðning í nautgriparækt.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist ný 8. mgr. svohljóðandi: Heimilt er að veita tímabundna undanþágu frá skilyrði 6. tölul. 4. mgr. mæli sérstakar ástæður með því.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. apríl 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.