Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

157/2020

Reglugerð um (37.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2019, frá 13. desember 2019 öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/990 frá 17. júní 2019 um breyt­ingu á skránni yfir ættkvíslir og tegundir í b-lið 1. mgr. 2. gr. tilskipunar ráðsins 2002/55/EB, í II. viðauka tilskipunar ráðsins 2008/72/EB og í viðaukanum við tilskipun ráðsins 93/61/EBE. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 30. janúar 2020, bls. 65.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáð­vöru, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. febrúar 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica