1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 254/2019, frá 25. október 2019 öðlast, eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/649 frá 24. apríl 2019 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1925/2006 að því er varðar transfitu, aðra en transfitu sem kemur fyrir frá náttúrunnar hendi í fitu úr dýraríkinu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 90, frá 7. nóvember 2019, bls. 271.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. desember 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.