Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1080/2019

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði út af Austurlandi, suðursvæði.

1. gr.

Frá 5. desember 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði út af Austurlandi, suðursvæði, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 64°20,00 N - 13°00,00 V
  2. 64°20,00 N - 15°00,00 V
  3. 64°40,00 N - 15°00,00 V
  4. 64°40,00 N - 13°00,00 V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til þess að öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2020. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 1074/2019 um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði út af Austurlandi, suðursvæði.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. desember 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.