1. gr.
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Svæðinu er skipt í suðaustur- og norðvestursvæði með línum sem dregnar eru í suður og austur úr hnitinu 65°13,00´N og 22°40,00´V.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar til þess að öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.