Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

983/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 944/2014, um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu.

1. gr.

Í stað færslunnar fyrir sexgilt króm í 13. lið III. hluta II. viðauka við reglugerðina komi eftirfarandi:

Króm (VI) 0,02 0,005 0,053

2. gr.

Við 30. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/725 frá 16. maí 2018 um breytingu á 13. lið III. hluta II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar króm VI, í því skyni að laga viðaukann að þróun á sviði tækni og vísinda, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2018 frá 21. september 2018.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 10. gr. og 3. mgr. 13. gr., sbr. 3. mgr. 27. gr. laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu nr. 134/1995, með síðari breytingum og öðlast hún þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. nóvember 2019.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Daði Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.