Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 9. okt. 2021

955/2019

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 147/2016 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1787 frá 24. október 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/6 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1787 er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 3/2019.

3. gr.

Reglugerðin er sett með heimild í 27. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. október 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.