Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

678/2019

Reglugerð um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. - Brottfallin

1. gr.

Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og norður­fjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2018/2019, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2018, skal á fisk­veiði­árinu 2019/2020 úthluta aflamarki sem nemur samtals 893 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækju­vertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum afla í innfjarðarrækju fiskveiðiársins 2018/2019 á viðkomandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 152 þorsk­ígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 132 þorskígildislestir í hlut báta í Ísafjarðar­djúpi, 148 þorskígildis­lestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildislestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildislestir í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildislest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorsk­ígildislestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildislestir í hlut báts í norðurfjörðum Breiða­fjarðar.

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2018/2019 skal á fiskveiðiárinu 2019/2020 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildislestum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorsk­ígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorsk­ígildislestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildislestir í hlut báta við Hvalfjörð.

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2019. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu sam­kvæmt eftirfarandi töflu: 

Tegundir Lestir upp úr sjó Þorskígildislestir
Þorskur 1.519               1.276              
Ýsa  229                192              
Ufsi 453               209              
Steinbítur 47               25              
Gullkarfi 219               151              
Keila 16               6              
Langa 30               17              
Samtals: 2.513               1.876              

4. gr

Reglugerð þessi er sett skv. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2019/2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica