Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

533/2019

Reglugerð um úthlutun á WTO tollkvótum vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, smjöri, ostum, fuglseggjum og afurðum þeirra og unnum kjötvörum.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka III A, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tímabil innflutnings, vörumagn, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Vörumagn
kg
Verðtollur
%
Magntollur
kr./kg
Tollskrárnr.: Nautgripakjöt - vöruliðir 0202 og 0210: 95.000
0202.3xxx Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.07.19-30.06.20 0 848
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, saltað þurrkað eða reykt:
0210.2001 Beinlaust 01.07.19-30.06.20 0 517
Tollskrárnr.: Svínakjöt - vöruliðir 0203 og 0210: 64.000
0203.2100 Skrokkar og hálfir skrokkar 01.07.19-30.06.20 0 223
Læri, bógur og sneiðar úr því, með beini
0203.2201 Læri og lærissneiðar 01.07.19-30.06.20 0 446
0203.2209 Bógar og bógbitar 01.07.19-30.06.20 0 446
Með beini:
0203.29xx Svínakjöt, fryst 01.07.19-30.06.20 0 688
Af svínum fryst,
0206.4100 Lifur 01.07.19-30.06.20 0 74
0206.4900 Annað 01.07.19-30.06.20 0 183
0209.1000 Af svínum - svínafita 01.07.19-30.06.20 0 63
Svínakjöt, saltað, þurrkað eða reykt:
0210.1100 Læri, bógur og sneiðar úr því, með beini 01.07.19-30.06.20 0 363
0210.1200 Slög og sneiðar af þeim, beinlaust 01.07.19-30.06.20 0 492
0210.1901 Reykt - beinlaust 01.07.19-30.06.20 0 559
0210.1902 Annað 01.07.19-30.06.20 0 559
0210.1909 Annars - beinlaust 01.07.19-30.06.20 0 559
Tollskrárnr.: Kinda- eða geitakjöt - vöruliðir 0204 og 0210: 345.000
0204.3000 Lambaskrokkar, heilir eða hálfir - frystir 01.07.19-30.06.20 0 184
0204.4xxx Kindakjöt, fryst 01.07.19-30.06.20 0 632
0204.5000 Geitakjöt 01.07.19-30.06.20 0 184
Annað, fryst:
0206.9100 Svið (sviðahausar) 01.07.19-30.06.20 0 101
0206.9009 Annars 01.07.19-30.06.20 0 291
Kindakjöt, saltað, þurrkað eða reykt.
0210.9921 Beinlaust 01.07.19-30.06.20 0 411
0210.9929 Annars 01.07.19-30.06.20 0 411
0210.9931 Beinlaust 01.07.19-30.06.20 0 606
0210.9939 Annars 01.07.19-30.06.20 0 606
Kjöt af alifuglum - vöruliður 0207: 59.000
Tollskrárnr.: Af hænsnum af tegundinni Gallus domisticus:
0207.1xxx Af hænsnum, fryst 01.07.19-30.06.20 0 253
Af kalkúnum:
0207.2xxx Af kalkúnum, fryst 01.07.19-30.06.20 0 347
Af öndum, gæsum eða perluhænsnum:
0207.4xxx Af öndum, fryst 01.07.19-30.06.20 0 347
0207.5xxx Af gæsum, fryst 01.07.19-30.06.20 0 347
0207.6xxx Af perluhænsnum, fryst 01.07.19-30.06.20 0 347
Tollskrárnr.: 53.000
0405.xxxx Smjör og önnur fita 01.07.19-30.06.20 0 341
Ostur og ystingur: 119.000
0406.1011 Skyr með viðbættum sykri eða sætuefni 01.07.19-30.06.20 0 243
0406.1019 Annað skyr 01.07.19-30.06.20 0 243
0406.1090 Annað 01.07.19-30.06.20 0 243
0406.2000 Hvers konar rifinn eða mulinn ostur 01.07.19-30.06.20 0 243
0406.3000 Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn 01.07.19-30.06.20 0 181
0406.4000 Gráðostur 01.07.19-30.06.20 0 278
0406.9000 Annar ostur 01.07.19-30.06.20 0 272
Tollskrárnr.: 76.000
0407 Fuglsegg, í skurn, ný varin skemmdum eða soðin:
Frjóegg til útungunar:
0407.1100 Af hænsnum af tegundinni Gallus domestictus 01.07.19-30.06.20 0 133
0407.1900 Önnur 01.07.19-30.06.20 0 133
Önnur fersk egg:
0407.2100 Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus 01.07.19-30.06.20 0 133
0407.2900 Önnur 01.07.19-30.06.20 0 133
0407.9000 Önnur 01.07.19-30.06.20 0 133
0408 Fuglsegg, skurnlaus, og eggjarauða, nýtt, þurrkað, soðið í gufu eða vatni, mótað, fryst eða varið skemmdum með öðrum hætti, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætuefni:
Eggjarauða:
0408.1100 Þurrkuð 01.07.19-30.06.20 0 559
Önnur:
0408.1901 Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi, í 5 kg umbúðum eða stærri 01.07.19-30.06.20 0 148
0408.1909 Annars 01.07.19-30.06.20 0 148
Annað:
0408.9100 Þurrkað 01.07.19-30.06.20 0 559
Annars:
0408.9901 Soðin egg, í 10 kg umbúðum eða stærri 01.07.19-30.06.20 0 148
0408.9909 Annars 01.07.19-30.06.20 0 148
Tollskrárnr.: Kjötvörur úr vörulið 1602: 86.000
1602.1001 Blönduð matv. meira en 60% af kjöti 01.07.19-30.06.20 0 143
1602.1009 Meira en 20% til og með 60% 01.07.19-30.06.20 0 143
1602.2011 Meira en 60% af dýralifur 01.07.19-30.06.20 0 199
1602.2012 Meira en 20% til og með 60% af dýralifur 01.07.19-30.06.20 0 199
1602.2019 Annað 01.07.19-30.06.20 0 44
1602.2021 Annað, meira en 60% af dýralifur 01.07.19-30.06.20 0 199
1602.2022 Annað, meira en 20%, til og með 60% 01.07.19-30.06.20 0 78
1602.2029 Annað 01.07.19-30.06.20 0 26
1602.3101 Úr kalkúnum meira en 60% 01.07.19-30.06.20 0 347
1602.3102 Úr kalkúnum meira en 20% til og með 60% 01.07.19-30.06.20 0 347
1602.3109 Annað 01.07.19-30.06.20 0 115
1602.3201 Úr hænsnum meira en 60% 01.07.19-30.06.20 0 347
1602.3202 Úr hænsnum meira en 20%, til og með 60% 01.07.19-30.06.20 0 347
1602.3209 Annað 01.07.19-30.06.20 0 115
1602.3901 Annað meira en 60% úr alifuglum 01.07.19-30.06.20 0 347
1602.3902 Annað 20% til og með 60% úr alifuglum 01.07.19-30.06.20 0 347
1602.3909 Annað 01.07.19-30.06.20 0 115
1602.4101 Úr svínum meira en 60%, læri og lærissneiðar 01.07.19-30.06.20 0 893
1602.4102 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.19-30.06.20 0 343
1602.4109 Annað 01.07.19-30.06.20 0 115
1602.4201 Meira en 60% af kjöti, bógur og bógsneiðar 01.07.19-30.06.20 0 750
1602.4202 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.19-30.06.20 0 247
1602.4209 Annað 01.07.19-30.06.20 0 83
1602.4901 Annað meira en 60% af kjöti, blöndur 01.07.19-30.06.20 0 893
1602.4902 Annað meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.19-30.06.20 0 307
1602.4909 Annað 01.07.19-30.06.20 0 102
1602.5001 Meira en 60% kjöt úr nautgripum 01.07.19-30.06.20 0 620
1602.5002 Meira en 20% til og með 60%, úr kjöti 01.07.19-30.06.20 0 304
1602.5009 Annað 01.07.19-30.06.20 0 102
1602.9011 Úr dilkakjöti meira en 60% af kjöti 01.07.19-30.06.20 0 893
1602.9012 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.19-30.06.20 0 265
1602.9019 Annað 01.07.19-30.06.20 0 89
1602.9021 Annað, úr öðru kjöti meira en 60% 01.07.19-30.06.20 0 893
1602.9022 Annað, meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.19-30.06.20 0 265
1602.9029 Annað 01.07.19-30.06.20 0 89

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins þar sem vísað er til skilmála reglugerðar þessarar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun skv. 1. og 2. mgr. er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júní 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.