Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 21. maí 2019

460/2019

Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á svínasíðum.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á svínakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Verðtollur Magntollur
% kr./kg
Tollskrárnr.: Svínakjöt, fryst:
-- Annað:
ex0203.2902 Annað - svínasíður með beini 20.05. - 23.06.19 0 162
ex0203.2909 Annað - svínasíður beinlaust 20.05. - 23.06.19 0 205

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 23. júní 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. maí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.