Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

436/2019

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla.

1. gr.

3. tölul. 2. mgr. 38. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Allan afskurð, hausa, slóg og fráflokk skal vigta og niðurstaðan skráð á vigtarnótu.

2. gr.

5. tölul. 39. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Nettóþungi afskurðar, hausa, slógs og fráflokks.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. maí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.