Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

186/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 163/1973, um hvalveiðar.

1. gr.

2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Leyfi til veiða á hrefnu árin 2019, 2020, 2021, 2022 og 2023 skal veita þeim íslensku skipum, sem eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila, sem hafa stundað hrefnuveiðar í atvinnuskyni á árunum 2006-2008 eða félaga sem þeir hafa stofnað um slíka útgerð. Einnig skal veita leyfi þeim íslensku skipum sem eru í eigu eða leigu einstaklinga sem að mati ráðherra uppfylla neðangreind skilyrði til að fá leyfi til hrefnuveiða. Eingöngu þeim skipum sem sérútbúin eru til veiða á stórhvölum er heimilt að taka þátt í veiðum á langreyði árin 2019, 2020, 2021, 2022 og 2023.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 26, 3. maí 1949, um hvalveiðar, til að öðlast þegar gildi. Sjá jafnframt viðauka sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. febrúar 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kristján Skarphéðinsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.