Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

88/2019

Reglugerð um bann við veiðum á ígulkerjum á austursvæði í innanverðum Breiðafirði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 31. janúar 2019 eru allar veiðar á ígulkerjum óheimilar á veiðisvæði í innanverðum Breiðafirði, svokölluðu austursvæði. Bannsvæðið afmarkast af svæði sem er austan við línu, sem dregin er milli hnitanna 65°10´N, 22°40´V og 65°00´N, 22°40´V og austan við línu sem dregin er milli hnitanna 65°08´N, 22°31´V og 65°04´N, 22°25´V.

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. janúar 2019. 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica