Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

907/2018

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/519 að því er varðar 22. túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun 22).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 205/2018, frá 21. september 2018, um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/519 frá 28. mars 2018 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar 22. túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun 22).

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2018/519 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 64/2018, 27. september 2018, bls. 369.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. september 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.