Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

790/2018

Reglugerð um heimild til flutnings á allt að 100% aflamarks í humri frá fiskveiðiárinu 2017/2018 yfir á fiskveiðiárið 2018/2019. - Brottfallin

1. gr.

Heimilt er að flytja allt að 100% af aflamarki í humri frá fiskveiðiárinu 2017/2018 yfir á fiskveiðiárið 2018/2019.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglu­gerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. ágúst 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica