Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

476/2018

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 442/2011 um uppruna og ræktun íslenska hestsins.

1. gr.

Í viðauka við reglugerðina breytist í 2. Reglur um kynbótasýningar undirkaflinn Starfsfólk og verksvið þess og verður eftir breytingu svohljóðandi:

  • Kynbótadómarar á Íslandi skulu hafa lokið BS-gráðu í búvísindum, hestafræði eða dýralækningum og þurfa að hafa staðist sérstakt hæfnispróf Bændasamtaka Íslands. FEIF setur reglur um kröfur til dómara á alþjóðavettvangi. Hvað varðar ráðningu dómara á kynbótasýningum á Íslandi má gera undantekningu á fyrrnefndum kröfum um menntun ef viðkomandi dómari er með alþjóðlegt leyfi frá FEIF til að starfa sem kynbótadómari sem gefið var út fyrir árið 2015 (upprunalegt leyfi).
  • Á hverri kynbótasýningu starfa að jafnaði þrír dómarar og hafa samráð um einkunnir. Undantekningu frá fjölda dómara má gera ef hross eru 35 eða færri. Skipaður er formaður í hverri dómnefnd en hlutverk hans er að sjá til þess að dómstörf gangi vel fyrir sig og að niðurstaða fáist. Listi yfir formenn dómnefnda er samþykktur árlega af fagráði í hrossarækt.
  • Á hverri kynbótasýningu skal starfa sýningarstjóri sem ber ábyrgð á framkvæmd sýningarinnar með dómnefnd. Auk þess skulu starfa á sýningum mælingamenn, tölvarar og þulir, allt eftir þörfum hverju sinni.

2. gr.

Í viðauka við reglugerðina breytist 1. mgr. 4. Skrokkmál og verður eftir breytingar svohljóðandi:

Stóðhestar, hryssur og geldingar skulu mældir með bandi, stöng, boga og skíðmáli á eftirtalinn hátt:

3. gr.

Í viðauka við reglugerðina breytist stigunarkvarði vegna einkunnanna 8,0 og 7,5 í 5. Stigunarkvarði einstaklingsdóma í undirkaflanum Tölt, og verður eftir breytingu svohljóðandi:

  1. 8,0:
    -Taktgott tölt með góðu afturfótastigi, lyfta og framgrip framfóta er ekki undir meðallagi, allgóð ferð.
    -Taktgott tölt með góðu afturfótastigi, góðri lyftu og framgripi framfóta en töltferð er í meðallagi.
    -Rúmt lyftingargott, framtaksmikið tölt en um nokkra taktgalla er að ræða þegar komið er á ferð.
    -Fremur stutt afturfótastig en lyfta og framgrip framfóta er mikið, hreinir taktgallar eru ekki til staðar, hrossið nær góðri töltferð.
    -Til að einkunnin 8,0 náist þarf einkunn fyrir hægt tölt að vera að lágmarki 7,0.
  2. 7,5:
    -Taktgott tölt en nokkuð skortir á rými þess og glæsileik.
    -Taktgott tölt, rúmt en reisnarlítið (lággengni).
    -Rúmt, lyftingar- og framgripsmikið tölt en um talsverða taktgalla er að ræða á hægu- og milliferðartölti.
    -Tölt með stuttu afturfótastigi en lyfta og framgrip fóta er mikið og allgóð ferð næst.
    -Hámarkseinkunn ef ekki er sýnt hægt tölt.
    -Hámarkseinkunn ef eingöngu er sýnt hægt tölt.

4. gr.

Í viðauka við reglugerðina, breytist stigunarkvarði vegna einkunnanna 8,0 og 7,5 í 5. Stigunarkvarði einstaklingsdóma í undirkaflanum Stökk og verður eftir breytingu svohljóðandi:

  1. 8,0:
    -Sniðgott stökk, stökkferð í meðallagi.
    -Ferðmikið stökk, snið í meðallagi.
    -Til að einkunnin 8,0 náist þarft hægt stökk að vera minnst 7,0.
  2. 7,5:
    -Þokkalegt stökk með sæmilegu sniði og stökkferð í meðallagi.
    -Stökkferð og snið (taktur, svif og mýkt) geta vegið upp vankanta hvort á öðru.
    -Hámarkseinkunn ef eingöngu er sýnt hægt stökk.
    -Hámarkseinkunn ef ekki er sýnt hægt stökk.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búnaðarlögum nr. 70/1998, ásamt síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. maí 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.