Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

415/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 258/2012, um rækjuveiðar innfjarða. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi eru heimilar frá gildistöku reglugerðar þessarar og til og með 31. ágúst 2018.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglu­gerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. apríl 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica