Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

221/2018

Reglugerð um brottfall reglugerðar um gjaldskrá fyrir eftirlit og aðra gjaldskylda starfsemi Matvælastofnunar, nr. 567/2012. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi fellir úr gildi reglugerð nr. 567/2012 um gjaldskrá fyrir eftirlit og aðra gjaldskylda starfsemi Matvælastofnunar, með síðari breytingum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 25. og 26. gr. laga um matvæli nr. 93/1995, 11. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr nr. 66/1998, 11. og 17. gr. laga um slátrun og sláturafurðir nr. 96/1997, 31. og 31. gr. a. laga um sjávarafurðir nr. 55/1998, 8. og 8. gr. a. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, 15. gr. laga nr. 90/2011 um skeldýrarækt, 33. gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra, 14. og 14. gr. a. laga nr. 71/2008 um fiskeldi og 2. mgr. 3. gr. laga nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. febrúar 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Birgitta Kristjánsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica