Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

97/2018

Reglugerð um loðnuveiðar færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2017/2018. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til loðnuveiða færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, á tímabilinu frá og með 30. janúar 2018 til og með 30. apríl 2018. Óheimilt er að stunda veiðar með öðrum veiðar­færum en nót. Færeyskum skipum er þó heimilt að stunda loðnuveiðar með flotvörpu innan svæðis sem tilgreint er í 5. gr. Veiðarfæri, sem eru annarrar gerðar en leyfi miðast við, skulu geymd í sérstakri veiðarfærageymslu. Sé flottroll geymt á flottrollstromlu skal poki trollsins fjar­lægður og geymdur sérstaklega í veiðarfærageymslu.

2. gr.

Aðeins þeim skipum sem fengið hafa sérstakt leyfi frá Fiskistofu er heimilt að stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Um borð í veiðiskipi skal vera leyfi til loðnuveiða eða afrit af því.

Skip, sem óska eftir leyfi til loðnuveiða skulu sækja um það til Fiskistofu. Í umsókninni komi fram upplýsingar um nafn skips, skráningarnúmer, kallmerki, stærð í BT, burðargetu og upplýsingar um fjarskiptatæki. Skip sem afsala sér veiðileyfi skulu tilkynna það Fiskistofu og komi sömu upplýsingar fram og í umsókninni.

3. gr.

Færeyskum skipum er heimilt að veiða samtals 10.400 lestir af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Færeysk skip sem stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands samkvæmt reglugerð þessari skulu hlíta ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, nema annað sé sérstaklega ákveðið í reglugerð þessari. Þau skulu einnig hlíta sömu reglum og eiga við um íslensk skip við sams konar veiðar, m.a. um veiðibann, friðunarsvæði og aðra lokun svæða.

Ráðuneytið getur takmarkað eða bannað loðnuveiðar á ákveðnum svæðum í tiltekinn tíma þyki ástæða til þess, m.a. vegna verndunarsjónarmiða og til þess að stuðla að sem bestri hagnýtingu loðnustofnsins. Jafnframt getur ráðherra tekið ákvörðun um að ákveðinn fjöldi skipa stundi tilrauna­veiðar á loðnu í því skyni að kanna ástand loðnustofnsins undir eftirliti Hafrannsókna­stofunarinnar.

Hafrannsóknastofnun er heimilt að grípa til skyndilokunar veiðisvæða, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, fari hlutfall loðnu, smærri en 14 sm, yfir 20%, miðað við fjölda. Stærð loðnu er mæld frá trjónuoddi að sporðsenda.

4. gr.

Færeyskum skipum er heimilt að landa afla sínum í íslenskum höfnum og gilda um vigtun afla sömu reglur og gilda fyrir íslensk skip. Óheimilt er að umskipa afla í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Sé loðna kreist vegna hrogna um borð í skipi skal reikna magn afla sem samtölu af hrognum og afskurði.

Til og með 17. febrúar 2018 er færeyskum skipum heimilt að landa ¾ hlutum af kvóta sínum til manneldisvinnslu utan Íslands eða vinna aflann til manneldis um borð. Eftir 17. febrúar 2018 er að hámarki heimilt að landa 4.000 lestum af kvótanum til manneldisvinnslu utan Íslands eða vinna til manneldis um borð.

Færeyskum yfirvöldum er skylt að tilkynna til Fiskistofu um magn þess loðnuafla sem veiðist í fisk­veiði­landhelgi Íslands og landað er í Færeyjum. Tilkynna skal um hverja löndun innan sólar­hrings og hversu mikið fer til bræðslu, hversu mikið til manneldisvinnslu í Færeyjum og hversu mikið af lönduðum afla var unnið til manneldis um borð.

5. gr.

Færeyskum skipum er heimilt að stunda loðnuveiðar með flotvörpu innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

          1. 67° 11´ N – 014° 30´ V
          2. 68° 00´ N – 014° 30´ V
          3. 68° 00´ N – 008° 30´ V
          4. 65° 15´ N – 008° 30´ V
          5. 65° 15´ N – 011° 20´ V
          6. 66° 05´ N – 011° 30´ V
          7. 66° 15´ N – 012° 00´ V
          8. 66° 12´ N – 012° 22´ V
          9. 66° 40´ N – 012° 40´ V
          10. 66° 47´ N – 013° 00´ V
          11. 66° 52´ N – 013° 08´ V
          12. 67° 11´ N – 014° 30´ V

Verði aðgangur færeyskra skipa að fiskveiðilandhelgi Íslands takmarkaður, vegna nauðsynlegs skipulags á veiðum, er óheimilt að hefja veiðar í fiskveiðilandhelginni nema fyrir liggi staðfesting frá Landhelgisgæslu Íslands um að fjöldi skipa sé innan tilskilinna marka.

Ef fjöldi skipa er takmarkaður skv. 2. mgr. skulu ekki vera fleiri loðnuveiðiskip í fiskveiðilandhelgi Íslands hverju sinni en þau sem hafa hlotið staðfestingu frá Landhelgisgæslunni.

6. gr.

Skip sem leyfi hafa fengið til loðnuveiða, sbr. 2. gr., skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upp­lýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða með sjálfvirkum hætti á klukkustundar fresti til sam­eigin­legrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu og Fiskistofu hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin.

7. gr.

Um siglingu skips, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands hefjast og á leið út úr fiskveiðilandhelgi Íslands, gilda ákvæði reglugerðar um eftirlitsstaði erlendra skipa vegna veiða og siglinga í íslenskri fiskveiðilögsögu nr. 1133/2013, þar sem fram kemur staðsetning athug­unar­staðanna. Heimilt er Landhelgisgæslu Íslands að ákveða að skipin skuli sigla inn og út úr efnahags­lögsögunni á tilteknum athugunarstöðum og að þeim beri að tilkynna komu sína á þá með ákveðnum fyrirvara í samræmi við reglugerð nr. 1133/2013, um eftirlitsstaði erlendra skipa vegna veiða og siglinga í íslenskri fiskveiðilögsögu. Tímafrestir tilkynninga koma fram í reglugerð um rafrænar skeytasendingar, upplýsingagjöf og rafræn afladagbókaskil erlendra fiskiskipa í efnahags­lögsögu Íslands nr. 1170/2013.

8. gr.

Skipstjórum færeyskra loðnuskipa ber að auðvelda eins og unnt er eftirlit Landhelgisgæslu og Fiskistofu með veiðum, veiðarfærum og afla um borð í veiðiskipum. Telji eftirlitsaðilar að full­nægjandi eftirlit geti ekki farið fram á sjó er hlutaðeigandi skipstjórum skylt að hlíta fyrirmælum um að halda til nálægrar hafnar þar sem athugun getur farið fram.

Fiskistofu er heimilt að setja eftirlitsmenn um borð í færeysk loðnuveiðiskip. Skal útgerð skipsins sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru um borð við eftirlit og ennfremur greiða allan kostað af veru þeirra um borð í skipinu.

Sé loðna brædd um borð í skipi skal eftirlitsmaður Fiskistofu ávallt vera um borð og skal útgerð greiða allan kostnað vegna veru eftirlitsmanns um borð í skipi.

Fiskiskipum sem leyfi hafa fengið skv. 2. gr. til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og Veiðieftirlits Fiskistofu skulu hafa aðgang að eftirtöldum gögnum sé þess óskað:

Afladagbók.
Skipsdagbók.
Mælibréfi.
Teikningum af skipi.
Veiðileyfi frá Fiskistofu eða afriti af því.
Upplýsingum úr siglingatölvum og staðsetningartækjum skips.
Öðrum gögnum sem skipt geta máli við rannsókn meintra fiskveiðibrota.

Um borð í hverju skipi skulu vera teikningar af lestum þess þar sem fram kemur heildarrúmmál hverrar lestar. Þá skulu teikningar eða gögn sýna hvert rúmmál lestanna er miðað við 10 senti­metra millibil frá ákveðnum og merktum viðmiðunarstað.

9. gr.

Skipum ber að fylgja banni ráðuneytisins við veiðum vegna verndunarsjónarmiða og skyndilokunum Hafrannsóknastofnunar, sbr. 8.-11. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

10. gr.

Skip sem hafa veiðileyfi skv. reglugerð þessari skulu að öðru leyti fylgja ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

11. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

Jafnframt getur Fiskistofa svipt skip leyfi til loðnuveiða innan fiskveiðilandhelginnar brjóti útgerð eða áhöfn skips eða aðrir sem í þágu útgerðar starfa, gegn reglugerð þessari.

12. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. janúar 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica