Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

115/2018

Reglugerð um togveiðar á kolmunna árið 2018. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna í fiskveiðilögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu Færeyja og á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

Fyrir tímabilið 1. janúar 2018 til 31. desember 2018 er leyfilegur heildarafli sem hér segir (magn í lestum):

A B C D
293.000 15.529 1.500 277.471
  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Skerðing vegna framsals til Rússlands.
  4. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

Hvert skip verður að veiða a.m.k. 25% af aflamarki sínu í íslenskri lögsögu og á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Það magn sem hverju skipi ber að veiða utan færeysku lögsögunnar leiðréttist ef skipið nýtti ekki að fullu heimild sína til veiða í færeysku lögsögunni á árinu 2017 eða veiddi umfram þá heimild. Hafi kolmunnaafli tveggja eða fleiri skipa á árinu 2017 verið reiknaður sem eitt mengi (ein heild), sbr. og heimild í 4. mgr. þessarar greinar, skal leiðréttingin skiptast milli skipanna í réttu hlutfalli við aflamark þeirra árið 2018.

Fiskistofu er heimilt, samkvæmt beiðni eiganda/eigenda fiskiskipa, að reikna allan afla tveggja eða fleiri skipa í kolmunna, sem eitt mengi (eina heild) við uppgjör samkvæmt 3. mgr.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% umfram aflamark í kolmunna á árinu 2018 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2019. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2018 til ársins 2019. Við flutning milli ára, hvort heldur er vegna umframafla eða ónýtts aflamarks, skal taka mið af því hvernig afli 2018 skiptist milli veiða í íslenskri lögsögu og á samningssvæði NEAFC, annars vegar og færeysku lögsögunnar, hins vegar.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu. Í leyfi Fiskistofu skal kveða á um skyldu til veiða í íslenskri lögsögu og á samn­ings­svæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), sbr. 3. og 4. mgr. 1. gr. Í leyfinu skal einnig heimilað að færa þessa skyldu milli skipa. Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.

Fjöldi íslenskra skipa sem samtímis mega veiða kolmunna í lögsögu Færeyja takmarkast við 15.

3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90´ N - 020°30,00´ V
  2. 63°11,40´ N - 019°07,30´ V
  3. 63°07,50´ N - 018°38,00´ V
  4. 63°09,00´ N - 018°27,00´ V
  5. 63°07,00´ N - 018°02,00´ V
  6. 63°12,50´ N - 017°00,00´ V
  7. 63°20,00´ N - 016°03,00´ V
  8. 63°22,50´ N - 015°51,00´ V
  9. 63°26,00´ N - 015°29,00´ V
  10. 63°30,70´ N - 015°00,00´ V
  11. 63°33,60´ N - 014°41,70´ V
  12. 63°43,40´ N - 013°53,00´ V
  13. 64°00,00´ N - 013°07,00´ V
  14. 64°21,70´ N - 012°17,30´ V
  15. 64°32,30´ N - 011°41,00´ V
  16. 65°00,00´ N - 011°28,00´ V
  17. 65°27,00´ N - 011°24,00´ V
  18. 66°06,00´ N - 011°33,00´ V
  19. 66°42,00´ N - 012°50,00´ V

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunna­veiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´ V.

4. gr.

Íslenskum skipum sem leyfi hafa fengið til kolmunnaveiða með flotvörpu er skylt að halda afla­dagbækur um veiðarnar, sbr. reglugerð nr. 746/2016, um afladagbækur. Þar skulu m.a. koma fram upplýsingar um veiðisvæði, veiðitíma og afla í hverju togi. Skal Fiskistofu sent afrit af afla­dagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót eða eftir að veiðum lýkur.

Þegar kolmunni er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,10.

5. gr.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera 50 til 100 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnun í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.

6. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfs­menn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest við skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða skipsins á 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

7. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 432/2017, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum, og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

8. gr.

Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætlaðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og fyrirhugaðan löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lágmarkstíma, t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.

9. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri tilgreina í umsókn nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætla magn kolmunna. Sé landað erlendis þarf jafnframt að tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnríkinu. Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC, https://psc.neafc.org/(opnast í nýjum vafraglugga). Frekari upplýsingar má finna á slóðinni https://psc.neafc.org/designated-contacts (opnast í nýjum vafraglugga). Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla, þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Vegna afla umfram leyfilegt hámark skal beita ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta skip leyfi til kolmunnaveiða vegna brota á reglugerð þessari.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafn­framt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 300/2017, um togveiðar á kolmunna 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. febrúar 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica