Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. mars 2023

1042/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 19. og 20. tölul., sem verða svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1842 frá 14. október 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar rafrænt skoðunarvottorð fyrir innfluttar lífrænar vörur og aðra tiltekna þætti og reglugerð (EB) nr. 889/2008 að því er varðar kröfur um rotvarðar eða unnar lífrænar vörur og sendingu upplýsinga. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 453.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/838 frá 17. maí 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 889/2008 að því er varðar fóður fyrir tiltekin lagareldisdýr úr lífrænu eldi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 482.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. nóvember 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.