Prentað þann 24. apríl 2024
898/2017
Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á svínakjöti.
1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á svínakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Verðtollur | Magntollur | |
% | kr./kg | |||
Tollskrárnr.: | Svínakjöt, fryst: | |||
0203.2901 | Hryggir og hryggsneiðar | 24.10.-28.11.17 | 0 | 281 |
0203.2905 | Hryggvöðvar | 24.10.-28.11.17 | 0 | 498 |
0203.2906 | Vöðvar af læri | 24.10.-28.11.17 | 0 | 352 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 28. nóvember 2017.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Eggert Ólafsson.
Birgitta Kristjánsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.