Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

795/2017

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 295/2017, um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2017. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "10%" í 2. tl. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 15%.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. september 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica