Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

755/2017

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 102/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla auk áorðinna breytinga.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. við­auka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2017, frá 7. júlí 2017, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/228 frá 9. febrúar 2017 um breytingu á reglu­gerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 að því er varðar heiti og verksvið sér­fræð­inga­nefnda á vegum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48, frá 3. ágúst 2017, bls. 498.

2. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum eða 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. ágúst 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica