Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Stofnreglugerð

315/2017

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 636/2014 um fyrirmynd að vottorði fyrir viðskipti með óflegin stór villt veiðidýr.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2017, frá 1. febrúar 2017, öðlast eftirtalin gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 636/2014 frá 13. júní 2014 um fyrirmynd að vottorði fyrir viðskipti með óflegin stór villt veiðidýr. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 13.

2. gr.

Reglugerð þessi gildir með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, með síðari breytingum, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. mars 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.