1. gr.
Við reglugerðina bætist eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða II:
Heimilt er að flytja allt að 30% af aflamarki í úthafsrækju, humri og íslenskri sumargotssíld, 25% af aflamarki í hörpudisk og 15% af aflamarki í innfjarðarrækju frá fiskveiðárinu 2016/2017 yfir á fiskveiðiárið 2017/2018.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. apríl 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.