Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1067/2016

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 630/2016 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2016/2017. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi lokamálsliður 5. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Fiskistofa skal hafna tilboðum í tegund þegar þorskígildistonn uppboðstegundar Fiskistofu er lægra en 40% þorskígildistonna skiptitegundar (þorskur, ýsa, ufsi og steinbítur).

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. desember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica