1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á svínakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Verðtollur | Magntollur | |
% | kr./kg | |||
Tollskrárnr.: | Svínakjöt, fryst | |||
Beinlaust: | ||||
0203.2905 | Hryggvöðvar | 28.10.-27.11.16 | 0 | 498 |
0203.2906 | Vöðvar af læri | 28.10.-27.11.16 | 0 | 334 |
0203.2909 | Annað (svínasíður beinlausar) | 28.10.-27.11.16 | 0 | 197 |
0209.1000 | Svínafita | 28.10.-27.11.16 | 0 | 0 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 27. nóvember 2016.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. október 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Baldur Sigmundsson.